Þetta sögulega hús í New Westminster var áður staðsett þar sem nú er miðbæjarkjarni í elstu höfuðborg Bresku Kólumbíu.

Þegar feður bæjarins voru að gera svæðiskipulag fyrir viðskipta og verslanamiðstöðvar, var talið að húsið væri of verðmætt til niðurrifs og því ákveðið að flytja húsið þangað sem það er staðsett nú. Áður en húsið komst í eigu íslenska-kanadadíska klúbbsins í Bresku Kólumbíu höfðu margir áhugaverðir íbúar markað spor sín þar. Íslenski -kanadíski klúbburinn í Bresku Kólumbíu og meðlimir hans söfnuðu nægilegu fjármagni til að festa kaup á húsinu og gera það að menningarsetri klúbbsins,.

Í rúmlega 10 ár hefur klúbburinn unnið af alúð og natni að endurbótum á húsinu með það að markmiði að viðhalda sögu þess en einnig að gera endurbætur í samræmi við nútíma þægindi.

Endurbætur á lóð og gróðursetning var sérstakt aldamótarverkefni til að heiðra minningu Íslendinga sem komu til Bresku Kólumbíu fyrir fjöldamörgum árum síðan. Forseti Íslands hélt vígsluathöfn í garðinum þegar hann var í heimsókn í ágúst mánuði árið 2000.

Klúbburinn heldur mánaðarlega stjórnarfundi í húsinu, auk þess sem haldnir eru smærri viðburðir stöku sinnum. Á aðalhæðinni er einnig framúrskarandi íslenskt arfleifðar bókasafn , en húsið er betur þekkt sem vinalegt og þægilega rúmgott hús, þar sem ráðskona hússins býður gesti og nemendur velkomna og lætur þeim líða vel.

Þetta er stórt hús með fimm gestaherbergjum uppi; tveimur einsmanns herbergjum og þremur tveggjamanna herbergjum auk tveggja sameiginlegra baðherbergja.

Á aðalhæðinni er stórt fullbúið eldhús, með rafmagnseldavél, tveimur ísskápum og litlum frysti. (Stærri frystir er staðsettur í kjallara)
Örbylgjuofn og uppþvottavél auk allra nauðsynlegra eldhúsáhalda, gera eldamennsku auðvelda. Stór vinaleg borðstofa hefur aukahlutverki að gegna sem frábær vinnuaðstaða fyrir nemendur ef heimaverkefnin gerast rúmfrek. (Einu sinni í mánuði er borðstofan frátekin fyrir stjórnarfundi klúbbsins)
Sjónvarpsherbergi og þvottaherbergi eru í kjallara hússins.

Fyrir framan eldhúsið er stór nýr sólpallur, þar sem þægilegt er að sitja og slappa af auk þess sem hann veitir bílunum á bílastæði undir pallinum skjól.Það er heimilislegt andrúmsloft, stutt í búðir, bíó, strætó og aðeins 20 mín. akstur niður í miðbæ Vancouverer